Apr 15, 2007

Dauði og djöfull

Nú er ég ekki brosandi
angrar mig höfuðverkur
Þarf ég eitthvað örvandi
er til Egils sterkur?

Ég er að skrifa ritgerð um þessar mundir. Reyndar er ritgerðin ekki um "þessar mundir" heldur um hvernig er hægt að fækka föngum í fangelsum, svaka spennandi. Þar sem ég sit við skriftir er Steinar nokkur námsmaður að spila fyrsta mario bros inní stofu. Verður það að viðurkennast að maður öfundar hann nokkuð á því barnslega eðli sem grípur hann þegar hann "fær svepp".

Annars er ég símalaus. Ég víst lét Ásgeir hafa hann á föstudagskvöldið til að þurfa ekki að labba með hann heim. Veit að það er heimskuleg ástæða en ég var víst sótsvartur af ölvun. Það tók mig góðar 10 mínotur að fatta hvernig lásinn á útidyrunum í blokkinni minni virkaði og svo dágóða stund að koma lyklinum í skránna. Það hafðist svo á endanum með því að halda við hurðarhúninn því dyrnar voru á svo mikilli hreyfingu.

Svo er magnað hvað 6 tröppur geta verið brattar klukkan 7 á laugardagsmorgnum.