Ég er í svo góðu skapi.
Ég ætla nú ekki að fara að leggja það við vana minn að blogga um fréttir á mbl.is. Það geta hugmyndasnauðu tjáningarmellurnar á blog.is gert. Hvernig stendur á því að meirihlutinn af þessu liði leyfir manni ekki að commenta hjá sér. Maður þarf að vera innskráður til að geta bent mönnum á hvað þeir eru miklir bjánar.
Svo taldi ég 14 auglýsingar á forsíðu mbl. Sumar þeirra hreyfast og færast og ég veit ekki hvað.
Eru þeir að reyna að gefa mér flogaveikiskast?
Svo eru þeir tveir bloggarar sem hafa mesta aðsókn þar með yfir 30.000 í vikunni og það er bara þriðjudagur!!!
Á ég að trúa þessu kjaftæði?
Þó að eitthvað letingjapakk sem þykist vera í vinnunni geri ekkert allann daginn nema að refresha síðurnar þýðir það ekki að mikill hluti þjóðarinnar lesi þetta. Get ég ekki annað en dottið í hug vísa...
Margir lesa moggablogg,
meðan þeir eru að vinna.
Ýmsir plebbar þar ybba gogg,
og engu verki sinna.
Hátt þar trjónir hálfviti,
og hnyttin blaðamaður.
Biluð kelling, Björn Ingi
og bófi og glæpamaður.
Feministi og fáviti,
fáráðlingur með þvaður.
Sorp hjá Stefáni Friðriki,
Sóley bullar blaður.
Og fyrst ég er að þessu á annað borð....
Mér þykir það meira en von,
að menn þig flestir hati.
Herra Steingrímur J. Sigfússon,
hálfviti með gati.
En rétt í þessu var Herra Guðmundur Sveinsson ásamt spúsu að koma í hús. Verð víst að fara að sinna gestunum.
|