Framsókn ekki í sókn, ekki í vörn og ekki einu sinni inná vellinum

Nú hefur framsóknarhóran loksins verið slegin niður, troðið í farangursgeymslu bifreiðar, keyrt með hana nauðuga á afvikinn stað úti á landi og hún skilin eftir drukknandi ofaní skurði til að verða hröfnum að bráð.

Jón Sigurðsson sást í fréttum, fúll eins og smákrakki sem fær ekki að vera með í fallin spýta því hann er svo lítill og leiðinlegur.
Hann hljóp undan fréttamönnum sem vildu ræða við hann eins og þorpsfíflið í gamla daga þegar þorpsbúar ætluðu í sakleysi sínu að grýta það, sér til dægrastyttingar.
Framsóknarflokkurinn er núna eins og hann leggur sig, þ.a.s. allir 7 og kjósendur þeirra (sem eru aðallega mæður þingmannanna og einstaka fyrrum höfuðáverkasjúklingar úti á landi) grenjandi úr sér augun af því að Geir H. Haarde hætti með honum eftir 12 ára sambúð.
En það er stór hængur á. Nú getur svikakvendið (megi himnarnir hrynja yfir hana) sem hefur þegar tekist að svíkja íbúa Reykjavíkurborgar og núna í dag alla stjórnarandstöðuna. Loksins fengið tækifæri til að svíkja alla landsmenn eins og þeir leggja sig.
Kæru kjósendur Samfylkingarinnar!
... Það ætti að svipta ykkur sjálfræði apakettirnir ykkar!
|