Nov 27, 2007

Reynt að fylgja ströngustu reglum bragfræðinnar.

Mér leiðist hið eilífa vesenisvæl,
vanvitans, neyslunar peningaþræl.
Því getið þið alls ekki unað við sæl?
Elskað og lifað og dáið.
Hvað þarf að gerast svo loksins þið sannleikann sjáið!

Ég þoli´ekki andskotans aumingjatuð,
asna og ræfla sem brúka enn snuð.
Ég neita að trúa á gagnslausan gvuð!
glaður skal fara´ eitthvað annað.
Í helvíti´ er sýnist mér vægast sagt mjög betur mannað!