Aug 24, 2007

Viu viu



Ég skal redda þessu!!!!

Hlutirnir væru betri ef ég réði öllu bara. Ekkert helvítis kjaftæði og engin helvítis klúður.

* Nú er strætó að verða frír fyrir námsmenn. Hvaða hálfviti fer í strætó? Strætisvagnar eru eins og allir vita bara fyrir öryrkja, pólverja og gamalt fólk á leiðinni að drulla í heita pottinn í einhverri sundlauginni. Ef einhver er svo mikill aumingji að hann geti ekki borgað í strætó er bara annaðhvort að stela hjóli eða henda sér bara í höfnina og hætta þessu væli.

* Svo er einhver fyllibyttukelling að kæra lögregluna fyrir kynferðislega misnotkun. Hún var víst tekin drukkin við að keyra og var síðan "tekin" aftur inní fangaklefanum þegar hún neitaði að skila þvagprufu. Hún sagði lögreglu hafa haldið henni niðri og tekið sýnið með þvaglegg. Ég er ánægður með þessa stefnubreytingu lögreglunar að taka hart á ölvunarakstri. Nú verður þeim bara nauðgað sem keyra fullir. Það ætti að hafa einhvern fælingamátt.

* Vilhjálmur borgarstjóri er svo búinn að láta fjarlæga bjórkælinn úr ÁTVR niðrí bæ. Afhverju hefur hann ekki verið skallaður ennþá? ........ fyrir allan peninginn.


Ég er búinn að átta mig á því að til að komast áfram í lífinu þarf maður að vera óhræddur við að skalla fólk. Ef einhver er með kjaft þá verður umsvifalaust að skalla hann. Það dregur úr líkum á því að einstaklingurinn sem er sennilega fífl sýni þá óæskilegu hegðun aftur sem hann var skallaður fyrir.

Svo fyrir þá sem það kjósa er mjög auðvelt að koma nýskölluðum mönnum fyrir í skotti á bílum ef það liggur fyrir að hegðun þeirra sé óbetranleg. Svo er hægt í öllu þessu góðæri og byggingarframkvæmdum að steypa þá ofan í grunn einhverstaðar. Vandamálið leyst og steypa sparast.